Minnisvarði um Víkurkirkjugarð

 

    

Heiti verks             Minnisvarði um Víkurkirkjugarð

Listamaður            Páll Guðmundsson frá Húsafelli 

Fæddur                  1960

Dagsetning            2000

Staðsetning           Verkið stendur í suðurhluta Fógetagarðsins við Aðalstræti

Efniviður               Verkið er samsett úr 3 grásteinum með náttúrulegri áferð á bakhlið þess

Stærð                      1.72 -  2.0 m á hæð

Stöpull                   Enginn

 

                                Víkurkirkjugarður

  • Kirkja mun fljótlega hafa risið við höfðingjasetrið í Reykjavík eftir að kristni var innleidd á Þingvöllum árið 1000. Talið er að Þormóður sonur Þorkels mána hafi látið reisa kirkju framan við bæ sinn og gert grafreit umhverfis hana. Staður þessi var þar sem nú er horn Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Víkurgarður var síðar nefndur Fógetagarðurinn og entist hann Reykvíkingum í rúm 800 ár. Hann var um 40 x 80 metrar er hætt var að nota hann 1838. Ætla má að jarðneskar leifar 30 kynslóða Reykvíkinga hvíli þar.
  • Saga

    Þann 16.júní árið 2000 afhenti biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson, fyrir hönd skipulagsnefndar kirkjugarða, Reykjavíkurborg minnisvarða um hinn forna Vikurkirkjugarð.


    Áletrun

     

     

     


     

     

     

     

        Kirkjugarður Reykvíkinga frá upphafi Kristni til 1838

          Síðast jarðsett 1883 – Hér stóð Víkurkirkja til 1796


    Áritun                  P.G

    Eigandi                Listasafn Reykjavíkur

    Skráning              H-109