Jón Sigurðsson

                

 

Heiti verks              Jón Sigurðsson

Listamaður             Einar Jónsson

Fæddur                   1874

Staðsetning             Austurvöllur

Dagsetning             1931

Efniviður                Brons

Stærð

Stöpull                    Stöpull er eftir Guðjón Ó. Samúelsson arkitekt

 

                                       

                               Framan á stöpli er myndin "Brautryðjandinn

Saga

Minnisvarði Jóns Sigurðssonar stóð upphaflega fyrir framan Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu og var afhjúpaður 10. september 1911 en var síðan fluttur 1931 á Austurvöll fyrir framan Alþingishúsið, þar sem hann hefur staðið síðan. Áletrunina E.J er að finna á verkinu frá upphafi og strax árið 1911 var rætt um að merkja styttuna en aldrei orðið af því.

Á nýársdag rann upp afmælisár Jóns Sigurðssonar forseta en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811.  Afmælisins  verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli 30. desember s.l. markar upphaf afmælishaldsins. Það eru forsætisráðuneytið og Listasafn Einars Jónssonar sem standa að merkingunni að tillögu afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar.

Áletrun

Koparplata er á bakhlið fótstalls styttunnar með eftirfarandi texta

JÓN SIGURÐSSON FORSETI 17.6.1811 - 7.12.1879

Leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslendinga á 19. öld.

Styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn“ gerði Einar Jónsson 
myndhöggvari í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911.

Íslendingar austanhafs og vestan gáfu styttuna.

Hún var reist við Stjórnarráðshúsið 1911 en flutt á Austurvöll 1931.

JÓN SIGURÐSSON

Leader of Iceland´s independence movement.


 

Áritun                   E.J 

Eigandi                 Eign íslenska ríkisins  

Önnur verk

 

Bæn

Demantur

Hannes Hafstein

Jónas Hallgrímsson

Kona

Kristján IX

Úr álögum

Útlagar
 

                   

                        Jón Sigurðsson                           Standmyndin á Stjórnarráðstúninu þann 17. júní 1913

  f:  17.6. 1811 - d: 1879


Á silfursveig sem Íslendingar í Höfn settu á kistu Jóns stóðu þessi orð:

                        "Óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöldur."

Heimasíður 

www.hrafnseyri.is

www.kirkjugardar.is/saga/bok/jonsig.html

www.jonshus.dk